Dísa ljósálfur

Dísa ljósálfur flögrar um

Við vekjum athygli yngri kynslóðarinnar á því að Dísa ljósálfur mun heimsækja, ásamt góðvini sínum býflugunni, bókabúðir Eymundsson í Smáralind og Austurstræti á morgun, laugardaginn 4. desember. Þau vinirnir munu troða upp með leik og söng í Smáralind kl. 13 en fljúga svo niður í miðbæ og verða í Austurstræti kl. 15.

Söngleikurinn um Dísu ljósálf, sem sýndur er í Austurbæ um þessar mundir, hefur vakið verðskuldaða athygli. Sagan sjálf hefur heillað íslenska lesendur kynslóð eftir kynslóð og lifnar nú við í eftirminnilegri sýningu fyrir alla fjölskylduna.


INNskráning

Nýskráning