Drottningarfórn

Drottningarfórnin

Á fimmtudaginn kemur út þriðja og jafnframt síðasta bókin í flokki danska rithöfundarins Hanne-Vibeke Holst um konur og völd á 21. öldinni. Bókin ber nafnið Drottningarfórnin og er sannkallaður hvalreki fyrir aðdáendur pólitískra spennutrylla en bókin segir æsispennandi sögu af um miskunnarlausa valdabaráttu og fórnunum sem þarf að færa til að komast til æðstu metorða. Ef þú hafðir gaman af dönsku sjónvarpsþáttunum Borgen og House of Cards áttu eftir að elska Drottningarfórn sem og hinar bækurnar tvær í flokknum sem þegar hafa slegið í gegn hér á landi.

Elizabeth Meyer, hinn eitilharði og stórbrotni formaður danska Jafnaðarmannaflokksins, gæti orðið fyrsti kvenforsætisráðherra landsins. Framundan eru tvísýnar kosningar í skugga morðhótana hryðjuverkamanna og blóðugra átaka milli innflytjenda og hægriöfgamanna; aðstæður sem neyða hana til sársaukafulls uppgjörs við gyðinglegan bakgrunn sinn og fortíðina. Enginn veit þó að Meyer á sér leyndarmál sem er eins og tifandi tímasprengja, leyndarmál sem hún varðveitir af grimmd en er óðum að missa tökin á.

Hanne-Vibeke Holst (f. 1959) er einn vinsælasti höfundur Danmerkur. Drottningarfórnin er sjálfstætt framhald metsölubókanna Krónprinsessan og Konungsmorðið. Bækurnar gerast allar í sama heimi en standa allar einar og sér svo ekki þarf að lesa fyrri tvær til þess að njóta þeirrar nýju.

Hún hlaut lesendaverðlaun Berlingske Tidende og samtaka danskra bókasafna 2009 og De Gyldne Laurbær, verðlaun danskra bóksala, sama ár.

INNskráning

Nýskráning