Krakkaskrattar

Krakkaskrattar

Nú rétt fyrir Verslunarmannahelgi komu út tvær glænýjar og spennandi kiljur, hin eldfima Oona og Salinger og danska verðlaunabókin Krakkaskrattar.

Krakkaskrattar hefur notið gífurlegra vinsælda á Norðurlöndum alveg frá útgáfu, selst í bílförmum og m.a. hlotið dönsku bóksalaverðlaunin, De Gyldna Laurbær, og skáldsagnaverðlaun Politikien.

Sagan segir frá Lisu, sem gegnir herþjónustu í Afganistan þegar hún fær símtal að heiman. Yngri systir hennar, sem er hæfileikaríkur píanóleikari, hefur reynt að fyrirfara sér. Á leiðinni heim til Danmerkur rifjar Lisa upp bernsku sína á sveitabæ á Jótlandi – bernsku sem hefur markað allt líf hennar og systkina hennar þriggja. Geðsjúk móðir, ofbeldisfullur faðir, fátækt, harka, lygar og svik; börnin þurftu að takast á við óbærilegar aðstæður heima og fela þær út á við. Þau voru samstillt í upphafi en þroskuðust í ólíkar áttir. Nú er komið að uppgjöri og endurfundum.

Krakkaskrattar er mögnuð og nístandi sár saga um að horfast í augu við grimma fortíð og taka hana í sátt. Og um að eiga samherja í lífinu.

Anne-Cathrine Riebnitzsky, höfundur bókarinnar, hefur sjálf verið í danska hernum og starfað á sömu slóðum og aðalpersónan.

INNskráning

Nýskráning