Sveppahandbókin flyer

Útgáfuboð Sveppahandbókarinnar!

Samhliða aukinni skógrækt og betra aðgengi að skógum landsins hefur áhugi á sveppum og sveppanytjum aukist til muna á seinustu árum enda víða að finna gjöfull svæði af sveppum um land allt.

Miðvikudaginn 5. ágúst býður Garðyrkjufélag Íslands boðið á útgáfuhóf bókarinnar Sveppahandbókin – 100 tegundir íslenskra villisveppa eftir Bjarna Diðrik Sigurðsson sem kynnir bókina i máli og myndum.

Sveppahandbókin er ómissandi ferðafélagi þegar haldið er í sveppaleiðangur út í íslenska náttúru. Hér er áttatíu tegundum villtra matsveppa gerð ítarleg skil og jafnframt tuttugu tegundum eitraðra sveppa sem líkjast þeim og ber að varast. Einnig eru hér hagnýtar upplýsingar um sveppi og sveppatínslu almennt; um útbreiðslu og greiningu tegunda, hvenær best er að tína sveppi, um næringargildi þeirra og hvernig þeir skulu meðhöndlaðir þegar heim er komið.

Höfundur bókarinnar, Bjarni Diðrik Sigurðsson, skógvistfræðingur, er mikill áhugamaður um sveppi og nýtingu þeirra, og býr yfir hafsjó af fróðleik sem hann miðlar hér á afar aðgengilegan hátt. Hann hefur haldið fjölda námskeiða um sveppi og sveppatínslu sem notið hafa mikilla vinsælda.

INNskráning

Nýskráning