Þegar dúfurnar hurfu

Ekta Oksanen

Í dag dreifum við nýrri bók hinnar sívinsælu Sofi Oksanen, Þegar dúfurnar hurfu, sem er enn eitt snilldarverkið frá þessum magnaðar rithöfundi.

Edgar er snillingur í að koma sér vel við þá sem stjórna, sannkallað kameljón sem skiptir litum um leið og nýir ráðamenn gera sig heimakomna. Það er dýrmætur eiginleiki í Eistlandi á 20. öld þegar þeir sem fara með völdin eru ýmist Eistar sjálfir, Rússar eða þýskir nasistar. En Edgar býr við stöðugan ótta um að upp um hann komist og þá verða hans nánustu – þeirra á meðal eiginkona hans, hin fagra og vansæla Juudit, og náfrændi hans, frelsiskempan Roland – verstu óvinir hans.

Þegar dúfurnar hurfu er næsta skáldsaga Sofi Oksanen á eftir Hreinsun, ennþá viðameira verk en sú gífurlega vinsæla saga, og hefur hlotið mikið lof víða um lönd.

Sigurður Karlsson þýddi.

„Þessi texti er sprengiefni með myrkum kjarna, miskunnarlaus endurspeglun á sögu 20. aldar.“
Le Monde

„… glæsilegasta verk Sofi Oksanen til þessa, hreint snilldarverk.“
Kauppalehti

INNskráning

Nýskráning