Þórarinn Eldjárn og Anton Helgi Jónsson

Ljóðaveisla Þórarins og Antons á degi bókarinnar

Þórarinn Eldjárn og Anton Helgi  Jónsson lesa úr nýjustu verkum sínum í bókabúð Máls og Menningar í dag, 23.apríl, klukkan 17.

Á meðan Anton gerir sig heimakominn mun Þórarinn Tauta en láta aðra um að raula. Frumflutt verður lag sem hefur samið var við eitt ljóða Þórarins úr bókinni Tautar og raular sem kom út rétt fyrir páska.

Bók Antons Helga, Tvífari gerir sig heimakominn, kemur rjúkandi fersk úr prentsmiðjunni og beint inn á gólf á þessum dýrðardegi bókarinnar.

Í ljósi þess hve sólin ætlar að vera örlát í dag er ekki úr vegi að drífa sig í bæinn og njóta ljóðlistar þessara tveggja snillinga.

Síðdegisútvarpið talaði við Þórarinn fyrr í apríl  um ljóðin hans hér er viðtalið í heild.

INNskráning

Nýskráning