Guðmundur Andri Thorsson

Höfundaspjall á miðvikudaginn

Nú ber vel í veiði fyrir alla bókaunnendur. Næstkomandi miðvikudag, þann 11. desember, efnir Bókabúð Máls og menningar til höfundaspjalls í verslun sinni á Laugavegi en að þessu sinni ræðir Páll Valsson við Guðmund Andra Thorsson, höfund Sæmdar, sem hlotið hefur frábæra dóma auk þess að vera tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna nú á dögunum. Þeir félagar Páll og Guðmundur ræða um verkið sjálft, tilurð þess og allt mögulegt tengt þessari heillandi sögu um valdabaráttu tveggja mikilmenna 19. aldarinnar.

Höfundaspjallið hefst stundvíslega kl. 20:00

Sum sé, um er að ræða einstakt tækifæri til þess að fá innsýn í hugarheim Guðmundar Andra. Þessu ætti enginn að missa af!

INNskráning

Nýskráning