Hugleikur

Knæpugáta séra Hugleiks

Geim-óperan Opinberun er komin í búðir. Þar segir Hugleikur Dagsson frá biblískum heimsendi með tilheyrandi englum og skrímslum. Bókin er tiltölulega frumleg en stelur samt aðeins úr öðrum ævintýrum eins og Stargate, Mars Attacks og Biblíunni.

Af því tilefni verður pub quiz með Biblíuþema á Bar 46 í kvöld og hefjast leikar kl. 20. Séra Hugleikur stjórnar spurningakeppni um Jesú og Guð og svoleiðis. Bjór verður í boði á meðan birgðir endast og svo fínustu tilboð á barnum allt kvöldið.

Verðlaunin eru ekki af verri endanum; bækur Hugleiks og hið stórkostlega Skrípó-spil sem byggir á m.a. myndum eftir Hugleik.

INNskráning

Nýskráning