Vilborg Dagbjartsdóttir

Mikill fengur fyrir ljóðaunnendur!

Í berst íslenskum ljóðaunnendum sérstakur glaðningur: Ljóðasafn Vilborgar Dagbjartsdóttur. Vilborg hefur í áratugi verið meðal okkar ástsælustu skálda. Ljóð hennar eru fjölbreytt og höfða sterkt til margra; í senn opin, beinskeytt og djúp. Safnið geymir allar ljóðabækur hennar, frumsamin ljóð og þýdd, og fáein áður óbirt ljóð.

Vilborg vakti athygli strax árið 1960 með fyrstu ljóðabók sinni, Laufinu á trjánum, og rúmum áratug og tveimur ljóðabókum síðar hafði hún tryggt sér stöðu meðal virtustu og vinsælustu skálda okkar, ein fárra kvenna. Ljóðasafnið nýja er gefið út í tilefni af 85 ára afmæli hennar.

Vilborg yrkir á frjálsu, nútímalegu ljóðmáli og kjör og reynsla kvenna og barna verða henni oft að yrkisefni. Ljóð hennar eru opin og ná rakleitt til lesenda en einfaldleikinn er aðeins á yfirborðinu; þau tjá einatt annan veruleika handan við orðin, oft með vel völdum líkingum, beitingu andstæðna og þverstæðna. Umgerðin er fjölbreytt, allt frá knöppum japönskum hækum og seiðandi ljóðum í þjóðkvæðastíl til ljóðabálka og langra prósaljóða.

Þorleifur Hauksson ritar ítarlegan formála en hann skrifaði einmitt ævisögu Vilborgar, Úr þagnarhyl, sem hlaut frábærar viðtökur þegar hún kom út árið 2011.

INNskráning

Nýskráning