Nýja Ísland í molum?

Valgerður Benediktsdóttir á Réttindastofu Forlagsins mundaði hamarinn yfir nýbökuðu grjóti út í porti nú í morgun. Niðurbrotið mikla var liður í undirbúningi fyrir bókamessuna í London sem hefst um miðjan mánuðinn en þar munu nokkrir útvaldir erlendir forleggjarar og velunnarar íslenskra bókmennta fá sýnishorn af Nýja Íslandi í bland við nýjustu bókatíðindin. Hnullugurinn var fenginn með liðsinni björgunarsveitamanna á Hellu sem sérvöldu þetta sýnishorn og færðu í höfuðstaðinn.


INNskráning

Nýskráning