Sigríður Víðis

Til hamingju Sigríður Víðis

Fyrsta bók Sigríðar Víðis, Ríkisfang: Ekkert, hefur vægast sagt fengið frábæra dóma í hinum ýmsu fjölmiðlum síðustu daga. Páll Baldvin Baldvinsson gefur bókinni fimm stjörnur og segir bókina vera „áhrifamikið verk sem unnið er af alúð”. Agnes Bragadóttir gefur bókinni fjórar stjörnur og segir bókina „blaðamannslegt afrek”.

Fjölmargir hafa talað um bókina í fjölmiðlum og virðast allir vera sammála um að bókin sé áhrifamikil, mikilvæg og að saga kvennanna sé sögð af mikilli innlifun og á faglegan hátt.

Til hamingju Sigríður Víðis með fyrstu bókina þína og frábærar viðtökur!

INNskráning

Nýskráning