Árstíðir hugans: Heimspekileg dagbók

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2026 208 6.990 kr.
spinner

Árstíðir hugans: Heimspekileg dagbók

6.990 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2026 208 6.990 kr.
spinner

Um bókina

Hvað gerist þegar við gefum okkur tíma til að staldra við og spyrja spurninga sem skipta raunverulega máli?

Árstíðir hugans eftir Hrannar Baldursson er myndskreytt heimspekileg dagbók þar sem lesandinn er hvattur til að svara spurningum um lífið, hamingjuna, ástina, missinn, vonina og leit mannsins að merkingu, með sínum eigin orðum. Bókin varð til úr daglegri iðkun höfundarins: að beina sjónum að einni spurningu í senn og leyfa henni að opna nýja sýn á hið hversdagslega. Myndirnar eru einnig sprottnar úr þessari iðkun, unnar með aðstoð gervigreindar út frá skrifum höfundarins.

Við hverja spurningu hefur höfundur skilið eftir brot úr eigin svari sem getur virkað sem stuðningur og hvatning fyrir lesa andann til að finna eigin svör. Spurningarnar eru af ýmsum toga:

„Af hverju höfum við stundum áhyggjur af eigin kvíða?“ „Af hverju þurfum við að vita hvert við stefnum?“ „Hvernig getum við lært þegar við teljum okkur vita allt sem þarf að vita?“

Bókin býður lesandanum að staldra við, skrifa niður eigin hugsanir og finna sín eigin svör, með höfundinn sem hljóðlátan förunaut á leiðinni. Sumar spurningarnar veita huggun, aðrar vekja forvitni og enn aðrar fylgja lesandanum lengi eftir að bókinni hefur verið lokað.

Bókina má fylla út í einni samfellu, svara einni spurningu á dag eða opna hana af handahófi þegar þörf er á innblæstri. Hún hentar jafnt til persónulegrar ígrundunar, dagbókarskrifa, innblásturs fyrir skapandi skrif og innihaldsrík samtöl við aðra.

Árstíðir hugans er fallegur förunautur fyrir alla sem vilja skilja sjálfa sig og lífið örlítið betur.

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Árstíðir hugans: Heimspekileg dagbók”

Tengdar bækur

4.190 kr.
Original price was: 5.490 kr..Current price is: 999 kr..
1.490 kr.4.490 kr.
Original price was: 1.890 kr..Current price is: 1.690 kr..
1.290 kr.
8.090 kr.
Original price was: 2.790 kr..Current price is: 1.490 kr..
Original price was: 4.290 kr..Current price is: 1.999 kr..

INNskráning

Nýskráning