Dulnefnin – sögur 1996-2014

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2016 284 3.590 kr.
spinner

Dulnefnin – sögur 1996-2014

3.590 kr.

Dulnefnin
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2016 284 3.590 kr.
spinner

Um bókina

„Ég þykist vita að einhver hugsi sem svo: Það verður aldrei neitt úr þessu, þrátt fyrir að hann hringi í smið. Þetta er svona týpískt bókmenntalegt aðgerðaleysi; í lok frásagnarinnar mun ekkert hafa gerst, hann situr allan næsta vetur í stofunni, hríðskjálfandi úr kulda og horfir ásakandi augum á brotinn gluggann eins og sjálfur glugginn hafi komið í veg fyrir að eitthvað yrði gert í þessu með gluggann.“

Bragi Ólafsson hefur skrifað smásögur, skáldsögur og ljóð, auk leikrita fyrir svið og útvarp. Fyrsta smásagnasafn hans, Nöfnin á útidyrahurðinni, kom út 1996 og þremur árum síðar fyrsta skáldsagan, Hvíldardagar.

Það er ekki síst í smásögunum sem Braga tekst vel að lýsa hinu kómíska veraldarvafstri manneskjunnar og þeim hindrunum sem tungumálið setur henni – en raunar eru mörkin milli skáldskaparforma ekki alltaf augljós í verkum hans.

Dulnefnin er safn 25 sagna sem Bragi hefur sjálfur valið úr fjórum bókum sínum, útgefnum 1996–2014. Guðrún Lára Pétursdóttir bókmenntafræðingur ritar eftirmála um sögurnar.

Bragi Ólafsson er fæddur í Reykjavík árið 1962. Nýjasta skáldsaga hans, Sögumaður, kom út 2015.

Tengdar bækur

Staða pundsins
990 kr.3.490 kr.
Öfugsnáði
990 kr.2.590 kr.
Sögumaður
2.995 kr.
Fjarveran
1.755 kr.
Rómantískt andrúmsloft
2.580 kr.
Gæludýrin - Bragi Ólafsson
2.390 kr.
Handritið að kvikmynd Arnar Featherby og Jóns Magnússonar um uppnámið á veitingahúsinu eftir Jenný Alexson
2.375 kr.
Sendiherrann
990 kr.2.065 kr.
Samkvæmisleikir eftir Braga Ólafsson
990 kr.2.065 kr.
Hvíldardagar
990 kr.
Ljóðaúrval 1986-1996
1.375 kr.
695 kr.

INNskráning

Nýskráning