Frá hestum til hestafla

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2013 4.450 kr.

Frá hestum til hestafla

4.450 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2013 4.450 kr.

Um bókina

 

Frá hestum til hestafla er þriðja bók Bjarna Guðmundssonar á Hvanneyri. Hinar fyrri, . . . og svo kom Ferguson og Alltaf er Farmall fremstur, hafa notið mikillar hylli, enda rekur höfundur sögu íslensks samfélags út frá framvindu í landbúnaði á fróðlegan og skemmtilegan hátt, að ógleymdu frábæru myndefni.

Í þessari bók segir Bjarni sögur af vinnuhestum og hestanotkun við bústörf, fyrstu dráttarvélinni sem til Íslands kom – Akranesstraktornum svonefnda, Lanz-þúfnabananum og loks af landbúnaðarjeppunum, Willys og Land Rover. Þá rifja átta einstaklingar upp minningar sínar frá þessum breytingatímum. Bjarni Guðmundsson á Hvanneyri hefur verið óþreytandi við að afla heimilda og gagna um hvaðeina sem varðar þessa framvindu, sem er drjúgur þáttur íslensks samfélags alla tuttugustu öld. Þá er ótalið hið ómetanlega myndefni sem hann hefur viðað að sér víða að og er órjúfanlegur þáttur bóka hans. Síðast en ekki síst er Bjarni listagóður penni og segir þessa merku sögu á einkar lifandi og oft bráðskemmtilegan hátt.

Tengdar bækur

Original price was: 4.090 kr..Current price is: 1.499 kr..
2.090 kr.
Original price was: 4.990 kr..Current price is: 999 kr..
Original price was: 8.290 kr..Current price is: 3.990 kr..
5.390 kr.
4.490 kr.
4.190 kr.
9.290 kr.

INNskráning

Nýskráning