Yrkja vildi ég jörð

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2020 397 6.290 kr.
✓
spinner

Yrkja vildi ég jörð

6.290 kr.

Yrkja vildi ég jörð
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2020 397 6.290 kr.
✓
spinner

Um bókina

Í bókinni segir frá íslenskum jarðræktarháttum. Fjallað er um vinnubrögð og verkfæri til ræktunar fóðurs fyrir búfé: sum séríslensk en önnur erlend, löguð að hérlendum aðstæðum.

Sagt er frá túnasléttun á ýmsum tímum, beðasléttun, engjarækt og áveitum, framræslu og nýræktun túna, kornrækt svo og vörslu og viðhaldi ræktunar. Á grundvelli heimildarannsókna og með ljósmyndum og skýringarmyndum er ljósi varpað á mikilvæga þætti jarðræktarsögunnar allt frá elstu heimildum hennar til síðustu aldamóta.

Bjarni Guðmundsson var prófessor við Landbúnaðarháskóla Íslands og stýrði einnig uppbyggingu Landbúnaðarsafns Íslands á Hvanneyri. Hann hefur áður skrifað um búnaðarsöguleg efni, m.a. bækurnar Íslenska sláttuhætti og Íslenska heyskaparhætti.

Tengdar bækur

1.990 kr. – 4.990 kr.
2.990 kr. – 4.890 kr.
3.990 kr. – 4.990 kr.
4.990 kr.
3.890 kr.
2.990 kr.
1.790 kr.

INNskráning

Nýskráning