Í morgunsárið

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2020 44 2.990 kr.
spinner

Í morgunsárið

2.990 kr.

Í morgunsárið
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2020 44 2.990 kr.
spinner

Um bókina

Junko Nakamura (f. 1975) er japanskur Parísarbúi sem skrifar og teiknar barnabækur í algjörum sérflokki. Í morgunsárið er ljúf og ljóðræn saga um herra Bangsa og hundinn hans og geymir í sér látlausa en þarfa áminningu um að hafa ánægju af hinum hversdagslegu undrum tilverunnar.

Hundurinn Lubbi vaknar af nætursvefni og vappar inn í svefnherbergi til herra Bangsa til að ýta við honum. Bangsi er í essinu sínu eftir góðan nætursvefn. Þeir félagar fá sér morgunverð: gómsæt brauðsneið með hunangi veitir herra Bangsa meira að segja innblástur svo að hann seilist eftir minnisbókinni sinni. Á meðan lýsir morgunsólskinið upp eldhúsið og veröldina fyrir utan gluggann. Á morgnana er allt svo fallegt og ferskt, fullt af möguleikum!

Í morgunsárið minnir okkur á að hver nýr dagur er undur og sýnir börnum hversu ljúft það er að eiga sér skemmtilega morgunrútínu. Ef við hefjum daginn ánægð og brosmild aukast líkurnar á því að framhaldið verði gott.

Bókin brýnir líka fyrir okkur að sýna hvert öðru áhuga og virðingu og halda að lokinni góðri morgunstund út í heiminn með opin móttökuskilyrði fyrir öllu því sem veröldin hefur upp á að bjóða.

Junko Nakamura hefur einstakt lag á því að gæða hversdaginn ljóðrænum töfrum og hefur slegið í gegn sem barnabókahöfundur í Frakklandi. Í morgunsárið er ein vinsælasta bók hennar enda einstaklega hugljúf og skreytt frískandi og glaðlegum teikningum.

Tengdar bækur

5.790 kr.
Placeholder
kr.
Placeholder
kr.
Placeholder
5.490 kr.
Placeholder
5.490 kr.
4.990 kr.
2.590 kr.
6.190 kr.
Placeholder
kr.
Placeholder
kr.

INNskráning

Nýskráning