Inngangur að efnafræði

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2022 441 3.690 kr.
spinner
Hljóðbók - streymi 2022 App 2.990 kr. Setja í körfu
Rafbók 2022 - 2.990 kr.
spinner

Inngangur að efnafræði

2.990 kr.3.690 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2022 441 3.690 kr.
spinner
Hljóðbók - streymi 2022 App 2.990 kr. Setja í körfu
Rafbók 2022 - 2.990 kr.
spinner

Um bókina

Efnafræðingurinn Elizabeth Zott er svo sannarlega engin venjuleg kona og þegar hún ræður sig í starf á rannsóknarstofnun í Kaliforníu á sjöunda áratugnum þarf hún að takast á við alls kyns fordóma og berjast með kjafti og klóm fyrir viðurkenningu í karlaheimi. Hún ávinnur sér þó aðdáun og virðingu eins manns, ungs snillings sem er talinn líklegur til að vinna Nóbelsverðlaun – og ástin sameinar þau gegn öllum.

En ekki fer allt eins og ætlað er og fáeinum árum seinna er Elizabeth einstæð móðir sem stýrir vinsælasta matarsjónvarpsþætti Bandaríkjanna – þvert gegn vilja sínum – og gerir það á sinn einstaka hátt. Og það kemur við kaunin á ýmsum því að Elizabeth er ekki bara að kenna konum að elda samkvæmt lögmálum efnafræðinnar, hún hvetur þær til að breyta lífi sínu.

ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafraHér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Hljóðbókin er 13 klukkustundir og 32 mínútur að lengd. Dominique Sigrúnardóttir les.

Tengdar bækur

No data was found

INNskráning

Nýskráning