Íslandskvikmyndir

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2007 201 1.090 kr.
spinner

Íslandskvikmyndir

1.090 kr.

Íslandskvikmyndir
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2007 201 1.090 kr.
spinner

Um bókina

Við upphaf 20. aldar í Evrópu einkenndist sjónræn menning af áhuga á öllu því sem taldist framandi og undarlegt. Þannig var andrúmsloftið þegar erlendir menn tóku að gera heimildarmyndir um Ísland í fyrsta sinn. Bókin er rannsókn á Íslandsmyndum frá árunum 1916–1966 og leiðir skýrt í ljós að þær varpa fram ákveðnum myndum af landi og þjóð sem grundvallast á sjálfsmynd Íslendinga en þó aðallega á fyrirframgefnum hugmyndum erlendra manna um Ísland og íbúa þess.

Þessar ímyndir eiga rætur að rekja aftur í aldir en Íslandsmyndirnar áttu þátt í að skapa og styrkja ímyndir sem enn í dag eru áberandi í augum erlendra manna og jafnvel hafa þær ratað í sjálfsmynd Íslendinga. Íris Ellenberger rekur sögu 60 heimildarmynda um Ísland í ljósi sjónrænnar menningar, pólitísks andrúmslofts, viðskiptahagsmuna, strauma í kvikmyndagerð og kenninga um það vald í kvikmyndum.

Bókin er gefin út í ritröðinni Ritsafn Sagnfræðistofnunar.

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning