Íslensk heilbrigðismál í alþjóðlegu samhengi

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2019 356 5.990 kr.
spinner

Íslensk heilbrigðismál í alþjóðlegu samhengi

5.990 kr.

Íslensk heilbrigðismál í alþjóðlegu samhengi
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2019 356 5.990 kr.
spinner

Um bókina

Íslensk heilbrigðismál í alþjóðlegu samhengi eftir dr. Ágúst Einarsson prófessor emeritus er fyrsta bók sinnar tegundar á Íslandi þar sem fjallað er ítarlega um íslensk heilbrigðismál, þeim lýst og þau greind í alþjóðlegu samhengi. Íslensk heilbrigðismál eru meðal annars borin saman við heilbrigðismál á öðrum Norðurlöndum og á alþjóðavísu. Fjölmargar tölulegar upplýsingar eru í bókinni. Sérstaklega er sagt frá stöðu aldraðra og áskorunum tengdum þeim í framtíðinni. Bókin er 360 blaðsíður og ríkulega skreytt ljósmyndum auk skýringarmynda og taflna. Í lokakaflanum eru lagðar fram tillögur til úrbóta í íslensku heilbrigðiskerfi. Höfundur hefur umfangsmikla þekkingu á efninu og setur það fram á auðskiljanlegan hátt. Útgefandi er Háskólinn á Bifröst. Bókin er tileinkuð Bjarna Pálssyni, fyrsta landlækni Íslendinga, en í ár eru 300 ár liðin frá fæðingu hans.

Dr. Ágúst Einarsson er prófessor emeritus við Háskólann á Bifröst og fyrrverandi rektor skólans. Hann gegndi fjölmörgum trúnaðarstörfum í samfélaginu og var meðal annars alþingismaður. Ágúst hefur skrifað fjölda bóka, flutt erindi og birt greinar í tímaritum, bókum og ráðstefnuritum. Hann var prófessor við Háskóla Íslands í tæpa tvo áratugi, varaforseti samtaka evrópskra fræðimanna um frumkvöðla og lítil og meðalstór fyrirtæki og er nú formaður ráðgjafarnefndar Hafrannsóknastofnunar.

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning