Kaldaslóð

Útgefandi: Kver
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2021 503 3.190 kr.
spinner

Kaldaslóð

Útgefandi : Kver

3.190 kr.

Kaldaslóð
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2021 503 3.190 kr.
spinner

Um bókina

Allir í dönsku lögreglunni vita hver Martin Junckersen er. Einn reyndasti og besti rannsóknarlögreglumaður landsins, vel giftur, tveggja barna faðir. En Juncker hefur orðið á og tekið hliðarspor. Hann hefur verið fluttur til í starfi og býr nú í litlu syfjuðu sveitaþorpi á Suðaustur-Sjálandi. Honum hefur verið falið að stýra nýrri lögreglustöð í þorpinu og ætlar jafnframt að nýta tímann til að hugsa um aldraðan heilabilaðan föður sinn. Ekki ætti þetta að kalla á mikil átök en fyrr en varir fær hann stórbrotið morðmál inn á borð til sín. Karlmaður finnst látinn og eiginkona hans er horfin. Enginn hefur orðið neins var, engar vísbendingar er að finna og engin augljós ástæða virðist vera fyrir morðinu.

Fyrrverandi félagi Junckers í Kaupmannahafnarlög-reglunni, Signe Kristiansen, er enn í sínu gamla starfi í Kaupmannahöfn. Hún hlakkar til rólegra og notalegra jóla með fjölskyldu sinni en allt breytist þegar öflug sprengja springur á jólamarkaði í miðborg Kaupmannahafnar. Signe er ein þeirra sem stýrir leitinni að sprengjuvörgunum en fáar vísbendingar er að finna og slóðin virðist köld – þar til hún fær ábendingu sem beinir málinu í farveg sem henni hefði ekki einu sinni komið til hugar í sínum villtustu draumum.

Tengdar bækur

Opnunartímar á Fiskislóð

Virkir dagar 10-18
Laugardagar 11-17
Sunnudagar 12-16

 

Sími í verslun á Fiskislóð 39: 575 5636

Sími á skrifstofu á Bræðraborgarstíg: 575 5600

Fylgstu með á facebook!

2021 © Forlagið | Bræðraborgarstíg 7, 101 Reykjavík | Sími 575 5600 | forlagid@forlagid.is | www.forlagid.is

INNskráning

Nýskráning

nýskráning