Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Killiansfólkið
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2004 | 413 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2004 | 413 | 990 kr. |
Um bókina
Killiansfólkið eftir Einar Kárason, er ný og endurskoðuð útgáfu hinna margrómuðu skáldsagna Heimskra manna ráð sem kom út árið 1992 og Kvikasilfur frá árinu 1994.
Hér segir frá Sigfúsi Killian bílapartasala á Lækjarbakka, skrautlegri fjölskyldu hans og fleiri samferðarmönnum. Sagnagleði og húmor Einars Kárasonar nýtur sín hér til fullnustu í fjölskrúðugum frásögnum af athafnamönnum og auðnuleysingjum, göfugum markmiðum og lítilsigldum framkvæmdum þessa nýríka og síblanka fólks, sem endurspegla vel íslenskan samtíma síðustu áratuga.
1 umsögn um Killiansfólkið
Nanna Rögnvaldardóttir –
,,Frá því að Laxness lagði frá sér pennann hefur enginn íslenskur rithöfundur skapað jafn fjölskrúðugt persónugallerí í verkum sínum og Einar Kárason.“
Kolbrún Bergþórsdóttir