Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Kroppurinn er kraftaverk
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2019 |
|
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2019 |
|
Um bókina
Líkami þinn er snillingur. Hann gerir allskonar stórkostlega hluti, eins og að hoppa, stækka og lækna sárin sín. Ef þú hlustar segir hann þér hvað hann þarf til að vera hraustur og líða vel.
Þessi skemmtilega bók kennir börnum að þykja vænt um líkama sinn, hugsa vel um hann og bera virðingu fyrir líkömum annarra. Það er mikilvægt veganesti sem öll börn ættu að fá að taka með sér út í lífið.
Höfundur bókarinnar er Sigrún Daníelsdóttir og Björk Bjarkadóttir myndskreytti.
7 umsagnir um Kroppurinn er kraftaverk
gudnord –
„Bókin er kærkomin handa foreldrum sem vilja efla sjálfsvirðingu barna sinna, styðja þau til heilbrigðis og velferðar óháð líkamsvexti … Aðferðirnar sem Sigrún beitir eru hugvitssamlegar og skemmtilegar og felast í því að fá þau til að líta inn á við og skynja betur eigin líkama af væntumþykju og í því að fá þau til að horfa í kringum sig og skynja margbreytileikann í fólki og náttúru og sjá hversu ólíkt lífið er fjöldaframleiddum hlutum … Ég veit ekki um neina íslenska bók sem gerir þessu þarfa efni skil og finnst hún bæði nauðsynleg og kærkomin viðbót. Það er ástæða til að bæði þakka og óska höfundi til hamingju með þessa bók.“
Kristjana Guðbrandsdóttir / DV
gudnord –
Hér er á ferðinni sérlega falleg bók með mikilvægan boðskap. Textinn er skýr og talar til barna allt niður í þriggja ára. Myndirnar eru skemmtilegar og tjáningarríkar.
Silja Björk Huldudóttir / Morgunblaðið
gudnord –
„Falleg bók um brýnt málefni, kjörin til að kveikja mikilvægar umræður með börnum.“
Andri Snær Magnason, rithöfundur
gudnord –
„Þessi bók er eins og pöntuð fyrir yngstu nemendur grunnskólans. Börn sem bera virðingu fyrir sínum líkama og líkömum annarra hljóta að gera heiminn að betri stað.“
Kristín Gunnarsdóttir, kennari á yngsta stigi í grunnskóla
gudnord –
„Skemmtileg lesning fyrir börnin og ekki síður holl og góð lesning fyrir okkur fullorðna fólkið! Klárlega afmælisgjöfin í ár“
Sigríður Snorradóttir, sálfræðingur á BUGL og þriggja barna móðir
gudnord –
„Falleg og skemmtileg bók með mikilvægan boðskap sem á erindi við öll börn“
Dr. Elsa Eiríksdóttir, lektor á Menntavísindasviði Háskóla Íslands
gudnord –
„Þessi bók er hrein snilld! Ég mæli hiklaust með henni! Við dóttir mín áttum mjög uppbyggilega og skemmtilega stund við lestur hennar!“
Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sálfræðingur, sviðstjóri hjá Embætti landlæknis og formaður Evrópusamtaka um jákvæða sálfræði