Leyndardómar Draumaríkisins

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2023 227 4.590 kr.
spinner
Rafbók 2023 - 3.690 kr.
spinner

Leyndardómar Draumaríkisins

3.690 kr.4.590 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2023 227 4.590 kr.
spinner
Rafbók 2023 - 3.690 kr.
spinner

Um bókina

Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur 2023!

Nóttina eftir að hinn ellefu ára Davíð varð fyrir höfuðhöggi á körfuboltamóti er hann skyndilega staddur í Draumaríkinu, töfrandi stað þar sem draumar eru búnir til. Þar hittir hann hina orkumiklu Sunnu sem kynnir hann fyrir nýjum og spennandi heimi. En vandi steðjar að Draumaríkinu – martraðaskrímsli eru byrjuð að skemma drauma og fanga Draumlendinga!

Tekst Davíð og Sunnu að stöðva martraðaskrímslin og forða mannkyninu frá því að dreyma einungis martraðir að eilífu?

Kamilla Kjerúlf er fædd árið 1995 og er með meistaragráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands. Leyndardómar Draumaríkisins er fyrsta bók hennar.

Í umsögn dómnefndar um verðlaunin segir:

„Í Leynd­ar­dóm­um draumarík­is­ins tekst höf­undi að smíða vel út­hugsaðan æv­in­týra­heim sem sögu­hetj­an flakk­ar um með flæðandi hætti. Per­són­ur eru vel fram­sett­ar og trú­verðugar og rit­stíll­inn góður. Aðal­per­són­an Davíð stend­ur frammi fyr­ir vanda­máli í raun­heim­um sem æv­in­týra­leg­ar heim­sókn­ir hans í draumalandið hjálpa hon­um að tak­ast á við. Sögu­per­són­an vex fyr­ir vikið og sýn­ir ung­um les­end­um að oft má yf­ir­stíga vanda­mál sem virðast óleys­an­leg.

Jafn­framt hef­ur höf­und­ur gætt þess að ein­skorða sög­una ekki við eitt kyn og eru sam­skipti Davíðs við aðrar per­són­ur bæði eðli­leg og upp­byggi­leg. En það sem er þó fyr­ir mestu er sú skoðun dóm­nefnd­ar að sag­an er skemmti­leg og spenn­andi og munu ung­ir les­end­ur án efa taka henni fagn­andi, eins og bók­um Guðrún­ar Helga­dótt­ur meðan að henn­ar naut við.”

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Leyndardómar Draumaríkisins”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Tengdar bækur

No data was found

INNskráning

Nýskráning