Lúx – sögukorn

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2025 120 Original price was: 3.590 kr..Current price is: 1.490 kr..

Lúx – sögukorn

Original price was: 3.590 kr..Current price is: 1.490 kr..

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2025 120 Original price was: 3.590 kr..Current price is: 1.490 kr..

Um bókina

Ung íslensk hjón búa í Lúxemborg á þenslutímunum fyrir hrun. Þau eru ólík en ástfangin. Hún er háttsett í banka, hann sér um heimilið og einkabarnið. Brátt koma upp ýmis siðferðileg álitamál og það hriktir í stoðum hjónabandsins.

Leiðir þeirra Öldu Sifjar og Sighvats höfðu legið saman í Háskóla Íslands þar sem hann lagði stund á norræn fræði en hún viðskiptafræði.

Að loknu námi kenndi Sighvatur íslensku í efri bekkjum grunnskóla en Alda Sif öðlaðist skjótan frama í bankageiranum og gegnir nú stjórnunarstöðu í Lúxemborg.

Sighvatur kvaddi kennarastarfið og sér nú um heimilið og einkasoninn, sem nálgast skólaaldur, jafnframt því að huga að eilífðarverkefni sínu, ritgerð um „Þróun íslenskra spakmæla frá landnámi til vorra tíma“.

En ekki er hægt að eyða öllum deginum í fræðagrúsk og þegar Sighvatur tekur að rifja upp menntaskólafrönskuna sína undir leiðsögn ungrar kennslukonu dregur til tíðinda.

Ágúst er einkum þekktur sem kvikmyndaleikstjóri. Land og synir, Með allt á hreinu og Mávahlátur eru meðal átta bíómynda hans. Af fjölmörgum verkefnum fyrir sjónvarp má nefna Nonna og Manna. Hann átti stóran þátt í gerð bókarinnar Styrjöldin í Selinu sem greinir frá því þegar þriðja heimsstyrjöldin var sett á svið í ársbyrjun 1965. Fyrir tveimur árum kom út eftir hann skáldsagan Maður í eigin bíómynd þar sem Ingmar Bergman var í aðalhlutverki.

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Lúx – sögukorn”

Tengdar bækur

Original price was: 4.490 kr..Current price is: 1.790 kr..
Styrjöldin í Selinu - upprifjun
Original price was: 2.690 kr..Current price is: 1.990 kr..
Original price was: 3.290 kr..Current price is: 1.999 kr..
4.390 kr.
3.290 kr.
Original price was: 6.290 kr..Current price is: 4.999 kr..
3.190 kr. – 4.090 kr.
Original price was: 1.890 kr..Current price is: 1.690 kr..
3.590 kr.
Original price was: 999 kr..Current price is: 990 kr..
2.690 kr.
Original price was: 4.190 kr..Current price is: 999 kr..
Original price was: 4.890 kr..Current price is: 1.990 kr..

INNskráning

Nýskráning