Málheimar – sitthvað um málstefnu og málnotkun

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2017 214 3.790 kr.

Málheimar – sitthvað um málstefnu og málnotkun

3.790 kr.

Málheimar - sitthvað um málstefnu og málnotkun
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2017 214 3.790 kr.

Um bókina

Þessi bók fjallar um málstefnu og málnotkun. Íslenskt mál og málsamfélag kemur þar mikið við sögu en markmið höfundar er að lesandinn sjái það ekki aðeins frá íslenskum sjónarhóli enda á margt í íslenskri málstefnu og málstýringu hliðstæður annars staðar í heiminum.

Í bókinni er lögð áhersla á að skýra muninn á stöðu tungumála og formi þeirra. Rætt er um stöðu tungumála í mismunandi ríkjum, minnihlutamál og innflytjendamál, og vikið að stöðu íslensku og fleiri tungumála gagnvart heimstungunni ensku. Svolítið er fjallað um samspil tungumáls og sjálfsmyndar hópa og gerð er grein fyrir ýmsum mikil­ vægum hugtökum í málræktarfræði, svo sem málstefnu, málstýringu og málstöðlun.

Fjallað er um mismunandi eiginleika málfræðireglna og mun á lýsandi og vísandi málfræði. Þá er hugað að mismunandi málsniði og breytilegri málnotkun eftir aðstæðum. Þar koma m.a. við sögu hugtökin rétt og rangt mál og gott og vont mál. Sagt er frá hreintungustefnu, sem sett hefur mark sitt á ýmis tungumál, og í því sambandi koma tökuorð og nýyrði í íslensku m.a. við sögu.

Ari Páll Kristinsson er rannsóknarprófessor við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.

Tengdar bækur

3.690 kr.4.590 kr.
2.090 kr.
3.990 kr.
4.590 kr.
2.390 kr.
Predators_kapa_1400 x 2024
1.490 kr.
6.290 kr.
Die Geschichte von Dimmalimm
1.490 kr.
1.190 kr.

INNskráning

Nýskráning