Ótti

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2026 369 7.090 kr.
✓
spinner
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2026 369 7.090 kr.
✓
spinner

Um bókina

Þegar hin tvítuga Ólöf Snorradóttir finnst látin á kaldri stéttinni
fyrir framan blokk við Austurbrún bendir allt til þess að hún hafi í
örvæntingu og undir áhrifum vímuefna svipt sig lífi með því að
stökkva fram af þaksvölunum. En von bráðar vaknar grunur um
að ekki sé allt sem sýnist. Rannsóknarlögreglukonurnar Rúna og
Hanna kafa dýpra undir yfirborðið og fyrr en varir blasir við
hrollvekjandi sannleikur: Ólöf var haldin sjúklegri lofthræðslu
hún hefði aldrei stigið sjálfviljug út á þessar svalir.
Fljótlega vindur rannsóknin upp á sig og teygir anga sína inn í
dularfullan og lokaðan sértrúarsöfnuð, Hið heilaga blóð Krists,
sem faðir Ólafar stýrir af miskunnarlausri hörku. Undir yfirskini
guðsótta og réttsýni leynast skelfileg leyndarmál og grimmilegt
ofbeldi. Ótti er margslungin og hrollvekjandi glæpasaga og fjórða bókin í
hinni geysivinsælu seríu Steindórs Ívarssonar um Rúnu
rannsóknarlögreglukonu, en áður hafa komið út bækurnar
Blóðmeri, Völundur og Herranótt. Hér vefur hann beinskeyttan
norrænan glæpasagnavef þar sem áhrifamikil afhjúpun á
trúarofbeldi og óvænt ráðgáta halda lesandanum í heljargreipum
allt til síðustu blaðsíðu.

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Ótti”

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning