Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Riddarinn sem var ekki til
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 1994 | 490 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 1994 | 490 kr. |
Um bókina
Í liði Karlamagnúsar er riddari nokkur sem er frábrugðinn öðrum hermönnum keisarans að því leyti að hann er ekki til. Fáir standa honum á sporði í bardagalist, hann er afar fágaður í framkomu þó hann sé nokkuð smámunasamur, samræðulist hans og hirðmennska nálgast fullkomnun. Riddarinn berst áfram á viljastyrk sínum og í krafti afreka sinna og tignar. En dag nokkurn koma upp efasemdir um nafnbætur hans : bjargaði hann konungsborinni meyju frá spjöllum eða ekki? Riddarinn verður að sanna mál sitt, hann leggur í langa ferð og líf hans er í húfi. Riddarinn sem var ekki til er heillandi saga eftir einn snjallasta höfund Ítala á öldinni.