Rósir fyrir íslenska garða

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2025 359 8.390 kr.
spinner

Rósir fyrir íslenska garða

8.390 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2025 359 8.390 kr.
spinner

Um bókina

Líklega er ekkert tákn um ást, yndi og leyndardóma mannlegra tilfinninga greypt jafn sterkt í vitund mannkynsins og rósin – ímynd hennar og ilmur. Rósir hafa á öllum tímum heillað fólk með fegurð sinni, fjölbreytileika og táknrænu gildi. Þær hafa verið notaðar til skrauts og lækninga, borið boð um ást og sorg, og orðið tákn fyrir það sem ekki verður með orðum sagt.

En geta rósir raunverulega dafnað við íslenskar aðstæður?

Já, sannarlega – með vönduðu vali á yrkjum og réttri umhirðu.

Í þessari bók miðlar Vilhjálmur Lúðvíksson áratugalangri reynslu sinni og Rósaklúbbs Garðyrkjufélags Íslands af rósarækt við íslenskar aðstæður. Bókin er byggð á viðamiklum tilraunum í heimagörðum og skógargörðum víða um land, auk samskipta við rósaræktendur á Norðurlöndum og í Kanada um þeirra reynslu af ræktun á norðlægum slóðum.

Þekkingunni sem safnast hefur á undanförnum áratugum er miðlað með hagnýtri nálgun og skýrum ráðleggingum um þau atriði sem ráða mestu um árangur í ræktun rósa hér á landi. Yfir 250 rósayrki eru kynnt, mörg sem dafna vel með lágmarksumhirðu, og önnur sem þurfa skynsamlegt staðarval og vandaða umönnun til að ná sínu fegursta.

Vilhjálmur Lúðvíksson hefur stundað garð- og skógrækt í yfir 65 ár. Hann hefur gegnt formennsku í Garðyrkjufélagi Íslands og Rósaklúbbi Garðyrkjufélagsins, auk þess að starfa fyrir Skógræktarfélag Íslands. Hann er efnaverkfræðingur að mennt og starfaði lengst af sem forstöðumaður Rannsóknarráðs Íslands og RANNÍS.

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Rósir fyrir íslenska garða”

Tengdar bækur

2.990 kr.3.990 kr.
Original price was: 3.590 kr..Current price is: 2.700 kr..
2.999 kr.4.390 kr.
3.990 kr.
Original price was: 3.490 kr..Current price is: 1.990 kr..
Original price was: 1.890 kr..Current price is: 990 kr..
Original price was: 3.190 kr..Current price is: 2.290 kr..
álfar
Original price was: 7.290 kr..Current price is: 4.500 kr..
2.990 kr.
990 kr.

INNskráning

Nýskráning