Saga 2022 LX: 1

Útgefandi: Sögufélag
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2022 4.190 kr.
spinner

Saga 2022 LX: 1

Útgefandi : Sögufélag

4.190 kr.

Saga 2022 lx 1
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2022 4.190 kr.
spinner

Um bókina

Forsíðu Sögu prýðir púði eftir Karólínu Guðmundsdóttur vefara. Gerður Róbertsdóttir skrifar um Karólínu og verk hennar og byggir á rannsókn sem fram fór á Borgar sögusafni Reykjavíkur í aðdraganda sýningar um Karólínu sem stendur yfir á Árbæjarsafni.

Í álitamálum voru að þessu sinni fræðimenn beðnir að mæla með bókum sem komið hafa út á síðasta áratug.

Tvær ritrýndar greinar birtast í heftinu. Erla Hulda Halldórsdóttir og Ragnheiður Kristjánsdóttir skrifa um atkvæðagreiðslur í heimahúsum í þingkosningunum 1923 og lýðveldiskosningunum 1944 og þau viðhorf til kvenkjósenda og nýfenginna réttinda þeirra sem birtast í fyrirkomulaginu og umræðum um það.

Karen Oslund fjallar í sinni grein um Ferðabók Árna Magnússonar frá Geitastekk og setur hana í samhengi við fræðilegar áherslur sem tvinna saman heimssögulega greiningu og einsögulega aðferð á nýstárlegan máta.

Viðhorfsgreinar heftisins eru þrjár. Hafdís Erla Hafsteinsdóttir og Erla Hulda Halldórsdóttir svara hvor um sig grein Sigurðar Gylfa Magnússonar um kvenna- og kynjasögu úr síðasta hefti.

Bergsveinn Birgisson skrifar um mál sem hefur vakið töluverða athygli og snýst um það hvort Ásgeir Jónsson hafi sótt til skrifa Bergsveins án tilhlýðilegra heimildatilvísana í bók sinni, Eyjan hans Ingólfs, sem kom út á síðasta ári.

Stefán Bogi Sveinsson skrifar grein fyrir þáttinn Í skjalaskápnum um spennandi skjalafund á Seyðisfirði, þar sem löngu týnd eintök af handskrifuðu austfirsku kvennatímariti frá aldamótunum 1900 komu í leitirnar.

Loks eru í heftinu 15 ritdómar, ein ritfregn og ársskýrsla stjórnar Sögufélags.

 

Ristjórar eru Kristín Svava Tómasdóttir og Vilhelm Vilhelmsson.

Tengdar bækur

Opnunartímar á Fiskislóð

Virka daga 10-18
Laugardaga 11-17
Sunnudaga 12-16

 

Sími í verslun á Fiskislóð 39: 575 5636

Sími á skrifstofu á Bræðraborgarstíg: 575 5600

Fylgstu með á facebook!

2021 © Forlagið | Bræðraborgarstíg 7, 101 Reykjavík | Sími 575 5600 | forlagid@forlagid.is | www.forlagid.is

INNskráning

Nýskráning

nýskráning