Sapiens
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2019 | 1.490 kr. | |||
Mjúk spjöld | 2019 | 472 | 3.890 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2019 | 1.490 kr. | |||
Mjúk spjöld | 2019 | 472 | 3.890 kr. |
Um bókina
Við vorum ekki alltaf ein. Fyrir hundrað þúsund árum byggðu að minnsta kosti sex tegundir manna jörðina. Nú er aðeins ein þeirra eftir – við sjálf, Homo sapiens. Hvers vegna varð tegundin okkar ofan á í baráttunni um yfirráð jarðarinnar? Hvað varð til þess að forfeður okkar og formæður hópuðu sig saman og fóru að byggja borgir og stofna ríki? Hvernig stóð á því að við mótuðum hugmyndir um guði, þjóðerni, mannréttindi; bjuggum til gjaldmiðla, lög og kenningar sem við treystum? Hvernig urðum við þrælar skriffinnsku, skipulags og neysluhyggju? Og hvert stefnum við, hvernig verður framtíð mannkynsins?
Í Sapiens fer sagnfræðiprófessorinn Yuval Noah Harari yfir gjörvalla mannkynssöguna, frá árdögum til nútímans, og notar meðal annars líffræði, mannfræði, fornleifafræði og umhverfisfræði til að sýna hvernig sagan hefur mótað manninn og maðurinn söguna.
Bókin hefur hefur farið sigurför um heiminn; hún hefur komið út í 49 löndum og selst í meira en 5 milljónum eintaka.
Magnea J. Matthíasdóttir þýddi.
4 umsagnir um Sapiens
gudnord –
„Frábær bók fyrir alla áhugamenn um sögu og vísindi. Hún vekur margar spurningar.“
Davíð Stefánsson / Fréttablaðið
Arnar –
„Þýðing Magneu er lipur, textinn skýr og tær … Það er fengur að því að Sapiens skuli koma út á góðri íslensku.“
Björn Bjarnason / Morgunblaðið
Arnar –
„Áhrifamikil frásögn sem hefst með uppruna tegundanna og endar á mannkyni framtíðarinnar.“
The Guardian
Arnar –
„Lýsing Hararis á því hvernig mannkynið náði yfirráðum á jörðinni gagntekur lesandann…Spennandi og heillandi verk sem setur spurningarmerki við grundvallarheimsmynd okkar.“
The Observer