Séra Friðrik og drengirnir hans

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2023 487 8.190 kr.
spinner

Séra Friðrik og drengirnir hans

8.190 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2023 487 8.190 kr.
spinner

Um bókina

Í þessari viðamiklu ævisögu segir frá æskulýðsleiðtoganum dáða, séra Friðriki Friðrikssyni (1868–1961). Hann ólst upp við sára fátækt en braust með harðfylgi til mennta og gerðist prestur. Hann bjó yfir miklum persónutöfrum – og drengir og piltar tóku snemma að hópast um hann.
Í bókinni er lýst trúarlífi séra Friðriks og merkilegu ævistarfi, ekki aðeins hér á landi heldur einnig í Danmörku og Vesturheimi. Hann helgaði líf sitt æskumönnum og stofnaði meðal annars KFUM og KFUK rétt fyrir aldamótin 1900 og knattspyrnufélagið Val árið 1911. Séra Friðrik var svo mjög í hávegum hafður á sínum tíma að honum var stundum líkt við helga menn fyrri alda. En eins og fram kemur í þessari bók var persóna hans margslungnari en sú helgimynd sem hefur verið dregin upp af honum.

Afar vönduð og læsileg ævisaga sem bregður nýju ljósi á einn af svipmestu mönnum sinnar tíðar á Íslandi.
Höfundurinn, Guðmundur Magnússon sagnfræðingur, hefur kannað sögu séra Friðriks í nokkur ár og meðal annars leitað fanga í viðamiklu skjala- og bréfasafni hans.

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Séra Friðrik og drengirnir hans”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Tengdar bækur

Claessen
990 kr.4.490 kr.
990 kr.2.065 kr.

INNskráning

Nýskráning