Síðasta stúlkan

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2019 799 kr.
spinner

Síðasta stúlkan

799 kr.

Síðasta stúlkan
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2019 799 kr.
spinner

Um bókina

Mögnuð endurminningabók Nadiu Murad, sem fæddist og ólst upp í Kocho, litlu þorpi bænda og fjárhirða í Norður-Írak. Hún og systkini hennar tilheyrðu samfélagi Jasída og lifðu rólegu lífi. Því lauk hinn 15. ágúst 2014, þegar Nadia var aðeins 21 árs.

Vígamenn Íslamska ríkisins (ISIS) frömdu fjöldamorð á íbúum þorps hennar, tóku af lífi alla karlmenn sem neituðu að ganga af trúnni og allar konur sem voru of gamlar til að hægt væri að selja þær í þrældóm. Nadia var flutt til Mosul og neydd til að gerast ambátt ISIS ásamt þúsundum annarra Jasídastúlkna. Eftir að hún hafði margoft orðið fyrir nauðgunum og barsmíðum tókst henni naumlega að strjúka út á götur Mosul-borgar og finna skjól á heimili súnní-múslimskrar fjölskyldu þar sem elsti sonurinn á heimilinu hætti lífi sínu til að smygla henni á öruggan stað.

Saga Nadiu hefur nú knúið heiminn til að beina athygli að þjóðarmorðinu á Jasídum sem enn á sér stað. Í sögu hennar felst ákall um aðgerðir, hún er vitnisburður um lífsvilja manneskjunnnar og ástaróður til heimalands sem glataðist, brothætts samfélags og fjölskyldu sem styrjöld sundraði. Nadia Murad hlaut friðarverðlaun Nóbels árið 2018 fyrir baráttu sína.

Tengdar bækur

3.090 kr.
1.990 kr.
2.490 kr.3.990 kr.
4.590 kr.
1.890 kr.
2.790 kr.
1.890 kr.
1.290 kr.
2.990 kr.4.290 kr.
2.490 kr.3.990 kr.
3.690 kr.5.490 kr.
2.490 kr.3.990 kr.
2.490 kr.3.990 kr.
3.490 kr.3.690 kr.
1.990 kr.3.690 kr.
markús á flótta í 40 ár
5.190 kr.
Veistu ef vin þú átt
990 kr.3.790 kr.
samþykki
999 kr.1.990 kr.
11000 volt
2.499 kr.

INNskráning

Nýskráning