Skemmtisigling sem snerist upp í andhverfu sína – Norræn sakamál 2007

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Hljóðbók 2021 App 790 kr. Setja í körfu

Skemmtisigling sem snerist upp í andhverfu sína – Norræn sakamál 2007

790 kr.

Skemmtisigling sem snerist upp í andhverfu sína - Norræn sakamál 2007
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Hljóðbók 2021 App 790 kr. Setja í körfu

Um bókina

Hvernig gat þetta gerst, spurðu margir sig þegar fréttist af hörmulegu sjóslysi sem varð svo til uppi í landsteinum við Reykjavík í september 2005. Skemmtibát, sem hafði verið á siglingu innan hafnarsvæðisins, var siglt á Skarfasker, sem er rúma 300 metra undan landi þar sem styst er, með þeim afleiðingum meðal annars að maður á fertugsaldri lést við ásiglinguna og fimmtug sambýliskona hans drukknaði eftir að bátnum hvolfdi er honum var siglt stórskemmdum frá skerinu.

Dómsmálið vakti mikla athygli auk þess að vekja upp sterkar tilfinningar, jafnvel hjá fólki sem tengdist ekki þeim sem létust á nokkurn hátt. Ástæðan var líkast til sú að skipstjóri og eigandi bátsins, sem var ölvaður þegar ásiglingin átti sér stað, neitaði að hafa verið við stjórnvöl bátsins þegar hann steytti á skerinu og sagði konuna, sem drukknaði eftir ásiglinguna, hafa verið við stýrið, en þessi framburður skipstjórans gekk þvert á niðurstöður rannsókna lögreglu og réttarmeinafræðings. Þá hafði skipstjórinn ekki gripið til björgunarráðstafana af neinu tagi í kjölfar ásiglingarinnar heldur siglt bátnum frá skerinu, þó ekki stystu leið að landi, uns honum hvolfdi.

ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Hljóðbókin er 30 mínútur að lengd. Hjálmar Hjálmarsson les.

Tengdar bækur

Placeholder
kr.
Placeholder
kr.
Placeholder
kr.
3.890 kr.
3.190 kr.
Placeholder
kr.
Placeholder
kr.
5.890 kr.
2.690 kr.
1.790 kr.
1.290 kr.

INNskráning

Nýskráning