Steyptir draumar: líf og list Samúels Jónssonar

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2023 160 12.390 kr.

Steyptir draumar: líf og list Samúels Jónssonar

12.390 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2023 160 12.390 kr.

Um bókina

Samúel Jónsson var fæddur 1884 og lést 1969. Hann var bóndi á Brautarholti í Selárdal í Ketildalahreppi í Arnarfirði. Hann er einn þekktasti alþýðulistamaður sem Ísland hefur alið − þó ekki hafi verið fjallað um hann að neinu ráði í bókum um myndlist. Samúel var sjálflærður í listinni, en sem ungur maður teiknaði hann talsvert og málaði með vatnslit og olíulit. Listaferill hans hófst þó ekki fyrir alvöru fyrr en hann hafði efni á að kaupa sement fyrir ellilífeyrinn í þeim tilgangi að reisa listasafn og höggmyndagarð og svo bættist kirkja við, með býsönskum turni sem hann byggði einn síns liðs, kominn hátt á áttræðisaldur.

Þá kom vel í ljós að Samúel var mikill verkfræðingur í sér. Kirkjuna reisti Samúel þegar sóknarnefndin vildi ekki þiggja altaristöflu sem hann hafði málað fyrir Selárdalskirkju.

Í þessari bók er fjallað um líf og list Samúels og birtar myndir af verkum hans sem flest eru í einkaeigu, en mörg hafa glatast. Einnig eru birtar myndir sem sýna Samúel á síðustu árum hans á Brautarholti og myndir af listasafninu eftir lát hans. Jafnframt segir hér af endurreisnarstarfinu frá því Félag um endurreisn listasafns Samúels var stofnað 1998.

Ólafur J. Engilbertsson er ritstjóri bókarinnar. Gerhard König skrifar um sýn og aðferðir Samúels og ásamt Kára G. Schram skrifa þeir um endurreisnarstarfið.

 

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Steyptir draumar: líf og list Samúels Jónssonar”

Tengdar bækur

3.090 kr.
Original price was: 990 kr..Current price is: 699 kr..
Original price was: 1.890 kr..Current price is: 1.690 kr..
12.190 kr.
2.990 kr.
2.090 kr.
Original price was: 4.490 kr..Current price is: 2.999 kr..
2.990 kr.4.290 kr.
Original price was: 3.190 kr..Current price is: 1.990 kr..

INNskráning

Nýskráning