Sú sem varð að deyja

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2019 2.190 kr.
spinner

Sú sem varð að deyja

2.190 kr.

Sú sem varð að deyja
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2019 2.190 kr.
spinner

Um bókina

Lisbeth Salander mun ekki híma í fylgsni sínu sem hundelt bráð. Hún hefur látið sig hverfa og af henni finnst hvorki tangur né tetur. Enginn veit að nú loksins hefur hún í sjónmáli tvíburasystur sína og glæpasamtökin sem faðir hennar stofnaði.

Mikael Blomkvist leitar til Salander svo að hann geti borið kennsl á útigangsmann sem lifði og dó á götum Stokkhólmsborgar. Maðurinn finnst hvergi í kerfinu og hinstu orð hans voru óljóst muldur sem gæti skaðað valdamenn á æðstu stöðum, en í úlpuvasa hans fannst miði með símanúmeri Mikaels.

Enn á ný snúa Salander og Blomkvist bökum saman en glíma við sitthvort málið: hann að fletta ofan af spillingu í sænska stjórnkerfinu og hún að særa burt drauga fortíðar og gamlar syndir. Sú sem varð að deyja er síðasta bókin sem David Lagercrantz skrifar um sagnaheiminn sem Stieg Larsson skapaði. Millennium-bækurnar eru einn vinsælasti sagnabálkur sögunnar og hafa selst í yfir 100 milljónum eintaka um víða veröld.

Tengdar bækur

Það sem ekki drepur mann
990 kr.3.190 kr.
Stúlkan sem gat ekki fyrirgefið
990 kr.2.190 kr.

INNskráning

Nýskráning