Systirin í storminum – Sjö systur #2

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2022 560 3.690 kr.
spinner
Rafbók 2021 2.990 kr.
spinner

Systirin í storminum – Sjö systur #2

2.990 kr.3.690 kr.

Systirin í storminum
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2022 560 3.690 kr.
spinner
Rafbók 2021 2.990 kr.
spinner

Um bókina

Ally D’Aplièse er að fara að taka þátt í hættulegri keppni í skútusiglingum þegar hún fréttir af óvæntu og dularfullu andláti kjörföður síns. Hún hraðar sér til móts við systur sínar fimm á heimili fjölskyldunnar. Í ljós kemur að faðir hennar – leyndardómsfullur auðkýfingur, sem dætrunum þykir afar vænt um og kalla Pa Salt – hefur skilið eftir ertandi vísbendingar fyrir hverja um sig um hvernig hún geti fundið uppruna sinn.

Eftir dramatískar vendingar í einkalífinu ákveður Ally að segja skilið við sjóferðir og rekja slóðina sem faðir hennar lét henni eftir. Hún heldur til Noregs, þar sem hún kemst að því að saga hennar tengist órjúfanlega ævi ungrar, óþekktrar söngkonu, Önnu Landvik, sem var uppi fyrir meira en 100 árum og söng þegar víðfræg tónlist Griegs við ljóðabálk Ibsens, „Pétur Gaut“, var frumflutt.

Eftir því sem Ally fræðist meira um líf Önnu sækja á hana spurningar um hver faðir hennar, Pa Salt, hafi í rauninni verið. Og af hverju vantaði sjöundu systurina?

Systirin í storminum er önnur bókin í þessum seiðmagnaða bókaflokki sem er nefndur eftir fyrstu bókinni, Sjö systur. Söguþráðurinn byggir lauslega á goðsögnum um stjörnuþyrpinguna Sjöstirnið.

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Systirin í storminum – Sjö systur #2”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning