Tímarit Máls og menningar 2024 4. hefti

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2024 139 3.290 kr.
spinner

Tímarit Máls og menningar 2024 4. hefti

3.290 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2024 139 3.290 kr.
spinner

Um bókina

Óvænt þemu heftisins eru dauðinn og smásagan. Dauðinn prýðir forsíðuna og er leiðarstefið í viðtali Guðna Elíssonar við Hallgrím Helgason, en málverk þess síðarnefnda, Fjölskylduvinur, er kápumynd heftisins. Smásögurnar eru sex talsins auk greinar Kolbrúnar M. Hrafnsdóttur um það hvernig skáldævi-smásagan gerir bandaríska höfundinum Luciu Berlin kleift að takast á við áföll og erfiða lífsreynslu. Greininni fylgir þýðing Kolbrúnar á einni smásögu Berlin en í heftinu má einnig lesa smásögu eftir Pólska nóbelshöfundinn Olgu Tokarczuk í þýðingu Steinunnar G. Helgadóttur. Auk þeirra eiga höfundarnir Jónas Reynir Gunnarsson, Sunna Dís Másdóttir, Berglind Erna Tryggvadóttir og Pétur Eggerz smásögu í heftinu.

Arthúr Björgvin Bollason minnist þýska heimspekingsins Kants, sem hefði orðið 300 ára um þessar mundir og Harpa Rún Kristjánsdóttir fjallar um skáldsögur Ingibjargar Jónsdóttur. Fjórða og síðasta hugvekja Friðgeirs Einarssonar er á sínum stað og umsagnir um fjórar bækur. Snædís Björnsdóttir skrifar um Gegnumtrekk eftir Einar Lövdahl, Þorvaldur S. Helgason rýnir í smásagnasafn Ólafs Jóhanns Ólafssonar, Snjór í Paradís, Þorgeir Tryggvason fjallar um nýútkomna skáldsögu Jóns Kalmans, Himintungl yfir heimsins ystu brún og Soffía Auður Birgisdóttir um Fagurboða, ljóðabók Þórunnar Valdimarsdóttur.

Þá má lesa einstakt úrval ljóða eftir skáldin Karólínu Rós Ólafsdóttur, Jakub Stachowiak, Þórdísi Helgadóttur, Ófeig Sigurðsson, Böðvar Guðmundsson, Svövu ƠBrien, Sigurð Ingólfsson, Einar Ólafsson og Ægi Þór Jähnke.

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Tímarit Máls og menningar 2024 4. hefti”

Tengdar bækur

Original price was: 2.990 kr..Current price is: 2.490 kr..
Original price was: 3.890 kr..Current price is: 1.799 kr..
2.990 kr.
Original price was: 1.090 kr..Current price is: 590 kr..
Original price was: 4.490 kr..Current price is: 2.999 kr..
3.790 kr.
1.790 kr.
6.790 kr.
Sögur fyrir 2 ára ný
Original price was: 3.690 kr..Current price is: 1.990 kr..
Original price was: 3.890 kr..Current price is: 1.499 kr..
Original price was: 4.990 kr..Current price is: 999 kr..
Original price was: 4.490 kr..Current price is: 1.490 kr..
Original price was: 1.790 kr..Current price is: 1.499 kr..
1.499 kr.2.490 kr.
Original price was: 999 kr..Current price is: 990 kr..
Original price was: 3.190 kr..Current price is: 1.990 kr..
Original price was: 3.190 kr..Current price is: 1.990 kr..
4.490 kr.

INNskráning

Nýskráning