Veran í moldinni – Hugarheimur matarfíkils í leit að bata

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2022 296 4.890 kr.

Veran í moldinni – Hugarheimur matarfíkils í leit að bata

4.890 kr.

veran í moldinni
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2022 296 4.890 kr.

Um bókina

Ég laumast inn til ömmu og afa, stel bíllyklunum og dríf mig í Hagkaup. Í millitíðinni hafði ég farið út í ruslatunnu og sótt brauðstangirnar. Mér fannst það ekki spennandi en amma og afi höfðu ekki átt neitt almennilegt inni hjá sér nema smá Toblerone og einhverja kökuafganga sem ég var búin að klára. Ég varð að fá eitthvað meira og tróð því ruslatunnulyktandi brauðstöngunum í mig. Skömmin við þá gjörð var mikil en það er ekki eins og ég hafi verið að gera það í fyrsta sinn.

 

Af einstakri einlægni og ósérhlífni opnar knattspyrnukonan Lára Kristín Pedersen sig upp á gátt og segir hér frá átakanlegri baráttu sinni við matarfíkn, sem hún hefur glímt við um árabil meðfram því að stunda íþrótt sína af kappi hér heima og erlendis.

Lára hafði reynt að leita sér hjálpar víða en öll sund virtust lokuð hvert sem hún leit. Henni leið eins og hún dveldi ein neðanjarðar, í moldinni, myrkrið alltumlykjandi og engin undankomuleið. Umræðan um matarfíkn virtist ekki fyrirfinnast og úrræðin enn síður, ekki síst fyrir unga konu í íþróttum sem sjálf þurfti að yfirstíga skömmina og átta sig á rót vandans – fíkninni.

Með Verunni í moldinni ljær Lára baráttunni við matarfíkn mikilvæga og dýrmæta rödd. Lesendur skyggnast inn í hugarheim matarfíkils þar sem Lára skrifar í dagbókarformi um leit sína að bata, vöxtinn sem fylgdi í kjölfarið, föllin sem geta fylgt sjúkdómnum og hvernig unnt er að blómstra þrátt fyrir að glíma við fíknisjúkdóm.

Tengdar bækur

5.790 kr.
Placeholder
kr.
Placeholder
kr.
Placeholder
5.490 kr.
Placeholder
5.490 kr.
4.990 kr.
2.590 kr.
6.190 kr.
Placeholder
kr.
Placeholder
kr.

INNskráning

Nýskráning