Vestanvindurinn

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2026 476 8.990 kr.
✓
spinner

Vestanvindurinn

8.990 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2026 476 8.990 kr.
✓
spinner

Um bókina

Höfundur krydduðu rómantasíunnar Norðanvindsins færir lesendum nú aðra bók í seríunni um höfuðvindana fjóra. Myrk og seiðandi frásögn um forboðnar ástir, innblásin af grísku goðsögunni um Heró og Leander og skoska sagnaljóðinu Tam Lin eftir Robert Burns. Önnur bók í ritröðinni sem slegið hefur í gegn.

Nunnuefnið Bríet hefur tileinkað Þyrniárklaustri líf sitt. Hún vinnur þar sem járnsmiður og á hverju kvöldi les hún Textann til þess að undirbúa sig undir nunnuvígsluna. Í tuttugu og eitt ár hefur hún verið á þessari jörðu en aldrei snert karlmann. Eitthvað sem á líka aldrei eftir að gerast.

Þegar Bríet kemur að dularfullum karlmanni í skóginum, sem er alvarlega slasaður, getur hún ekki annað en komið honum til hjálpar. Kynni þeirra leiða hana síðan í ríki Undirheims, þar sem daunn rotnunar liggur yfir öllu á meðan huldufólkið dansar og pískrar. Þar kemst hún að því að maðurinn sem hún aðstoðaði er enginn annar en guðinn Sefíros, eða Vestanvindurinn, sjálfur vorboðinn.

Í Undirheimi eru flestir sem hún hittir viðsjárverðir og ekki síst Sefíros. Hann er hættulega sjarmerandi og þar að auki hefur enginn maður haft svona áhrif á Bríet. Ferð hennar um óhugnanlega árbakka og hella Undirheims er afar hættuleg á margvíslegan hátt, því þarna rekast á trú hennar og hjarta og þarna leggur hún ekki einungis framtíð sína undir, heldur lífið sjálft. Spicy rómantasía í fjögurra bóka seríu um höfuðvindana fjóra sem slegið hefur í gegn.

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Vestanvindurinn”

Tengdar bækur

5.290 kr.
8.790 kr.
890 kr.
Original price was: 3.490 kr..Current price is: 2.967 kr..
3.890 kr.
990 kr.
4.190 kr.
3.690 kr.
1.790 kr.

INNskráning

Nýskráning