Vofurnar í Belfast
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2019 | 360 |
|
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2019 | 360 |
|
Um bókina
Tólf fórnarlömb morðingjans og tugthússlimsins Gerry Fegans ásækja hann nótt sem nýtan dag. Fegan lagðist í drykkju eftir að hann kom úr steininum, þar sem hann sat í 12 ár fyrir nokkur morð, en nýtur enn virðingar á meðal írska lýðveldishersins og ólíkra aðila sem berjast fyrir málstað Norður-Íra.
En Fegan líkar ekki siðleysi og og græðgi stjórnmálamanna og brátt verður hann í vegi fyrir gömlu félögum sínum. Fegan leggur upp í vegferð til að friða samvisku sína, en til þess þarf hann að koma fyrir kattarnef ákveðnum aðilum sem áttu hlutdeild í morðunum. Á þann eina hátt getur hann losnað við vofurnar sem elta hann og kvelja.
En staðan flækist verulega þegar Fegan kynnist Marie McKenna og litlu dóttur hennar, sem valdamesti stjórnmálamaður Norður-Íra vill feiga.