Verðlaunabók valin

Dómnefnd um Íslensku barnabókaverðlaunin hefur komist að niðurstöðu um hvaða handrit ber sigur úr býtum í ár. Höfundinum hafa verið færðar fréttirnar en leynd hvílir yfir nafni hans þar til í haust þegar verðlaunasagan kemur út. Öðrum höfundum eru hér með færðar þakkir fyrir að senda inn handrit og bent á að hægt er að sækja þau á skrifstofu Forlagsins, Bræðraborgarstíg 7, þar sem er opið kl. 9-17 virka daga (nema frá 9.30 á föstudögum). Þann 1. nóvember 2011 verður ósóttum handritum fargað.

Næsti skilafrestur í samkeppnina um Íslensku barnabókaverðlaunin er 1. febrúar 2012.

INNskráning

Nýskráning