Gestir
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Kilja | 2025 | 147 | 4.290 kr. | ||
| Rafbók | 2025 | - | 2.990 kr. |
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Kilja | 2025 | 147 | 4.290 kr. | ||
| Rafbók | 2025 | - | 2.990 kr. |
Um bókina
„Ég opna Facebook og kíki á hverfissíðuna. Ég þarf ekki að skrolla lengi áður en ég kem að auglýsingunni. Þetta er mynd af kettinum sem liggur við hliðina á mér. Fyrir neðan hana stendur: EDIT ER TÝND!!“
Þegar ókunnug læða tekur að venja komur sínar heim til viðskiptafræðingsins Unnar veit hún nákvæmlega hvernig hún á að leysa vandann. Innan skamms stendur eigandinn, ung og illa tilhöfð kona að nafni Ásta, á tröppunum hjá henni með ferðabúr. Daginn eftir birtist Edit þó aftur og gýtur agnarsmáum kettlingi í rúmi Unnar. Í kjölfarið tekst einlæg vinátta með Unni og Ástu og smám saman hleypa þær hvor annarri inn í sína myrkustu kima, áföll og ástarsambönd. Þegar ógn steðjar að standa þær saman – jafnvel þótt það kosti ósegjanlega glæpi.
Gestir er blóðugur spennutryllir eftir meistara hrollvekjunnar, Hildi Knútsdóttur, sem áður hefur sent frá sér nóvellurnar Myrkrið milli stjarnanna, Urðarhvarf og Möndlu. Hildur hefur jafnframt skrifað fjölda ungmennabóka og hlotið fyrir þær ýmsar viðurkenningar.
























5 umsagnir um Gestir
Jón Gunnarsson –
,,Gestir er þaulhugsuð spennusaga og vönduð eins og aðrar bækur Hildar sem sýnir enn og aftur að þegar kemur að sálfræðitryllinum á hún sér fáa jafningja hér á landi.“
,,Þetta er feminískur sálfræðitryllir sem segir mjá.“
Snædís Björnsdóttir / Morgunblaðið
Jón Gunnarsson –
,,Eins og með fyrri bækur Hildar var ómögulegt að leggja bókina frá sér; ég las hana í einum rykk, ekki bara vegna þess hversu spennandi og ógeðfelld hún var, heldur vegna þess hve áhrifarík hún var. Þetta er ein af þessum bókum sem festist í huga manns löngu eftir að síðasta síðan er lesin sem er sjaldgæft við bækur af þessum toga. ““
Jana Hjörvar / Lestrarklefinn
Jón Gunnarsson –
,,Þótt þessar bækur séu stuttar og fljótlesnar sitja þær ótrúlega lengi í manni. Það er bara á færi mjög flinkra höfunda að setja saman svona stuttan texta og skapa jafn heildstæða sögu og Hildur er alltaf að ná betri og betri tökum á þessu formi. Gestir er spennandi og eftirminnileg saga.““
Steingerður Steinarsdóttir / Lifðu núna
Jón Gunnarsson –
,,Ég man ekki eftir því að hafa fundið fyrir slíkri ógeðstilfinningu við lestur síðan ég las American Psycho eftir Bret Easton Ellis. Mig langaði að kasta upp. Ég ætla ekki að ljóstra upp um neitt en þeir lesa sem þora.““
Ingibjörg Iða Auðunardóttir / Kiljan
Jón Gunnarsson –
,,Höfundur heldur áfram að nýta margt af því sem virkaði vel í fyrri bókum eins og hnittna sögukonu og kött sem fer sínar eigin leiðir. Allar skarta nóvellurnar sterkri persónusköpun, vel útfærðum hryllingi og spennu sem gerir lesandanum erfitt að leggja bækurnar frá sér og það á einnig við um Gesti. Gestir er virkilega góð hrollvekja, blóðug og spennandi, og grípur lesandann strax frá fyrstu blaðsíðu.“
Svanhvít Sif Th Sigurðardóttir / Bókmenntavefur Borgarbókasafnsins