Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Mín er hefndin
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Innbundin | 2025 | 223 |
|
||
| Rafbók | 2025 | - | 4.290 kr. | ||
| Kilja | 2025 | 223 | 4.990 kr. | ||
| Hljóðbók - streymi | 2026 | App | 4.990 kr. | Setja í körfu |
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Innbundin | 2025 | 223 |
|
||
| Rafbók | 2025 | - | 4.290 kr. | ||
| Kilja | 2025 | 223 | 4.990 kr. | ||
| Hljóðbók - streymi | 2026 | App | 4.990 kr. | Setja í körfu |
Um bókina
Þegar Bergþóra í Hvömmum kemur að líki á víðavangi sér hún strax að manninum hefur verið ráðinn bani. Hún veit líka að ýmsir sveitungar hennar báru heiftarhug til hans. Nokkru áður höfðu farið fram réttarhöld í Hvammahreppi þar sem blásnauðir einstaklingar hlutu óbærilega þungar refsingar fyrir litlar sakir. Margir eiga harma að hefna og fleiri gætu verið í hættu en sá sem liggur á grúfu frammi fyrir Bergþóru í fyrsta snjó vetrarins.
Mín er hefndin er sjálfstætt framhald Þegar sannleikurinn sefur þar sem áfram er fjallað um glæparannsóknir og ástarmál húsfreyjunnar í Hvömmum. Um leið er ljósi varpað á siðferði og réttarfar 18. aldar, ekki síst þann aðstöðumun sem eignir og ætterni sköpuðu fólki þegar refsivöndur laganna vofði yfir.
Nanna Rögnvaldardóttir hefur löngum verið einn virtasti matreiðslubókahöfundur landsins en á undanförnum árum hefur hún einbeitt sér að því að skrifa sögulegar skáldsögur sem njóta síst minni vinsælda.
























3 umsagnir um Mín er hefndin
Fanney Benjaminsdottir –
„Mín er hefndin er bráðskemmtileg afþreying. Sagnaheimurinn er vel upp byggður og skrifað er af þekkingu um siði og venjur fyrri tíma. Þá er glæpafléttan sjálf vel grundvölluð í sögunni og úrlausnin náði að koma mér á óvart.”
Gréta Sigríður Einarsdóttir / Víðsjá
Fanney Benjaminsdottir –
Steinþór Guðbjartsson / Morgunblaðið
Fanney Benjaminsdottir –
„Notaleg, spennandi og ljóslifandi … Þetta er bók sem bæði yljar og heldur manni spenntum alveg í gegn.”
Jana Hjörvar / Lestrarklefinn