Létt og loftsteikt í Air Fryer

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2025 190 6.290 kr.
spinner

Létt og loftsteikt í Air Fryer

6.290 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2025 190 6.290 kr.
spinner

Um bókina

Léttar og loftsteiktar kræsingar – fljótlegt að elda, færri hitaeiningar.

Í þessari spennandi matreiðslubók er að finna 80 girnilegar uppskriftir að loftsteiktum réttum fyrir sanna sælkera. Hvort sem þú ert byrjandi eða reyndur loftsteikingarmeistari, grænmetisæta, kjötæta eða grænkeri, þá finnurðu eitthvað hér við þitt hæfi: Gómsæta forrétti og snarl, fljótlegan morgunmat, safaríkan kvöldmat, vænt og grænt meðlæti og syndsamlega góða eftirrétti.

Það er fljótlegra að elda í Air Fryer en venjulegum ofni sem er ótvíræður kostur fyrir önnum kafið fólk. Auk þess er loftsteiking snilldaraðferð til að elda stökkan og safaríkan mat án þess að nota mikla feiti, og fækka þannig hitaeiningum án þess að fórna góðu bragði.

Nathan Anthony er matgæðingur sem hefur slegið í gegn á samfélagsmiðlum undir nafninu Bored of Lunch. Þar deilir hann einföldum og ómótstæðilegum kræsingum með fylgjendum sínum.

Nanna Rögnvaldardóttir þýddi.

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Létt og loftsteikt í Air Fryer”

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning