Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Eitur í augum
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Innbundin | 2026 | 256 | 7.890 kr. | ||
| Rafbók | 2026 | - | 4.290 kr. |
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Innbundin | 2026 | 256 | 7.890 kr. | ||
| Rafbók | 2026 | - | 4.290 kr. |
Um bókina
Húsfreyjan í Hvömmum er farin að huga að hjónabandi. Ekki þó sínu eigin, enda virðast draumar Bergþóru um að verða lögmannsfrú orðnir að engu. Henni bráðliggur hins vegar á að gifta kornunga fósturdóttur sína og reynist ekki þurfa að leita langt eftir hentugum eiginmanni. Ráðahagurinn á eftir að bjarga orðstír margra en einnig vekja sorg og reiði – og áður en langt um líður finnst maður í andarslitrunum eftir að hafa verið byrlað kransaugnaeitur.
Eitur í augum er lokabindi þríleiksins um hina ráðsnjöllu Bergþóru í Hvömmum, sem er jafn lunkin við að leysa morðmál og að koma sér og sínum undan þungum refsingum Stóradóms og útskúfun samfélagsins. Hér blandast ófyrirsjáanleg flétta, leyndardómsfullir glæpir og eldheit ástarsaga saman við heillandi – en harðneskjulegt – andrúmsloft 18. aldar.
Nanna Rögnvaldardóttir á að baki langan og farsælan feril sem höfundur bóka um matreiðslu og matarsögu. Hún hefur nú snúið sér að ritun sögulegra skáldsagna sem hlotið hafa frábærar viðtökur.
























Umsagnir
Engar umsagnir komnar