Ljóðakistan

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Askja 2025 7.290 kr.
spinner

Ljóðakistan

7.290 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Askja 2025 7.290 kr.
spinner

Um bókina

Í Ljóðakistunni leynast 20 fallegar íslenskar vísur og myndir sem söngfuglinn Ljóð og hagamúsin Lag hafa safnað saman á ferðalagi sínu um fjöll, skóga og tún 🐦 🐭

Þessi einstaka kista er hönnuð til að styrkja tengsl milli barna og fullorðinna í gegnum söng, lestur og samveru 🎶📚 Markmið hennar er að vekja forvitni, örva málþroska, ýta undir hugmyndaflug barna og skapa töfrandi augnablik sem lifa áfram í hjörtum þeirra sem deila þeim ❤️

Ljóð & Lag

Á fallegum stað, þar sem heimurinn getur verið allt sem þú óskar þér, bjuggu fuglinn Ljóð og hagamúsin Lag. Ljóð safnaði orðum í vængina sína og flaug með þau út í heiminn. Lag hlustaði á tónlistina og taktinn í náttúrunni, læknum, vindinum og hjartslættinum. En einn daginn tóku þau eftir einhverju undarlegu. Fólk var farið að tala minna saman, vísurnar heyrðust sjaldnar og skjáir farnir að taka við af sögum og söng. Ljóð og Lag urðu hugsi.

 „Ef enginn syngur, hvernig lifa vísurnar þá?“ spurði Ljóð.
„Og ef enginn segir orð, hver man þá sögurnar og tungumálið?“ hvíslaði Lag.

Þau ákváðu að gera eitthvað í málinu og lögðu af stað á vit ævintýranna. Í gegnum skóga, fjöll og minningar fundu þau sínar uppáhalds vísur og komu þeim fyrir í fallegri kistu.

Nú ferðast Ljóð og Lag um heiminn og minna fólk á að orð eru töfrar, tónlist veitir gleði og samvera er dýrmætasta gjöfin sem við getum gefið hvort öðru. Þau minna líka á það að íslenskan er ekki bara tungumál, hún er brú á milli kynslóða og menningar og ef við gætum hennar ekki, hver á þá að gera það?

Nánari upplýsingar um Ljóð og Lag

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Ljóðakistan”

Tengdar bækur

4.490 kr.
3.790 kr.
3.290 kr.
3.690 kr.
1.790 kr.
490 kr.
1.890 kr.
2.890 kr.
3.590 kr.
6.790 kr.
5.590 kr.
990 kr.1.990 kr.
6.290 kr.
2.990 kr.4.290 kr.
4.590 kr.
4.290 kr.4.690 kr.

INNskráning

Nýskráning