Fjögurra stjörnu krimmi

Nýjasta spennusaga krimmakeisarans James Patterson, Fyrirsætumorðin, fékk fjórar stjörnur hjá gagnrýnanda Morgunblaðsins um liðna helgi – enda hörkuspennandi lesning. Bókin situr nú í efsta sæti á kiljulista Eymundsson og hér á Forlagsvefnum enda á Patterson sér ófáa aðdáendur. Í þessari nýju bók er sögusviðið eyjan Hawai þar sem siðblindur morðingi leikur lausum hala. Blaðamaðurinn Ben Hawkins er sendur til að fylgjast með málinu og þá fyrst fara hjólin að snúast.

INNskráning

Nýskráning