Nýjar raddir – verðlaunabækur þriggja ungra höfunda koma út í rafrænu formi

Í tilefni af tíu ára afmæli Forlagsins haustið 2017 efndi útgáfan til samkeppni um bókmenntatexta eftir óútgefna höfunda undir yfirskriftinni Nýjar raddir. Síðdegis í dag var tilkynnt um verðlaunahafa samkeppninar og útgáfur á þremur verðlaunabókum.

Skilafrestur samkeppninar var 1. desember s.l. og bárust Forlaginu 39 handrit til dómnefndar sem hafði úr vöndu að ráða. Hana skipuðu Sigþrúður Gunnarsdóttir, ritstjóri hjá Forlaginu, og bókmenntafræðingarnir Silja Aðalsteinsdóttir og Ingi Björn Guðnason. Niðurstaðan varð að verðlauna og gefa út þrjár sögur sem allar þóttu áhugaverðar og grípandi.

  • Allavega eftir Ernu Agnesi Sigurgeirsdóttur er persónuleg, berorð og grátbrosleg saga um unga konu sem glímir við að koma böndum á hugsun sína og líf. Hvernig er hægt að ná tökum á sjálfri sér? Niðurstaða hennar er sú að lykillinn að lífshamingjunni felist í því að vera góð manneskja. Allavega er ekki sjálfshjálparbók, ekki skáldsaga, og þó!
  • Tinder match eftir Hörð Andra Steingrímsson segir frá ungum háskólanema sem skráir sig með hálfum huga á stefnumótaforrit í símanum þar sem hann kemst í samband við stelpu. Samtal þeirra fer út um víðan völl, þenur út skilningarvit hans og kitlar tilfinningarnar, en ruglar hann líka í ríminu.
  • Undir yfirborðinu eftir Tönju Rasmussen fjallar um unga konu sem er laus úr ofbeldissambandi, en aðeins að nafninu til. Í huganum og í draumum sínum er hún ennþá föst og hefur verið brotin niður svo rækilega að hún getur ekki risið upp. Ekki fyrr en hún hleypir Övu inn í líf sitt.

Allar bækurnar koma út sem rafbók sem fá má fyrir allar tegundir lesara, á vefverslun Forlagsins (forlagid.is), Amazon og öðrum stöðum þar sem rafbækur eru seldar.

Stefnt er að því að endurtaka leikinn í haust og gefa út fleiri nýjar raddir á rafrænu formi að ári.

 

INNskráning

Nýskráning