Glæpafelag Vestfjarða

Tindabikkjan afhent á laugardag

Glæpafélag Vestfjarða verður með glæpsamlega samkomu laugardaginn 1. febrúar kl. 13. Glæpastundin mun fara fram á viðeigandi stað eða á Bókasafni Ísafjarðar þar sem allar glæpabækur þjóðarinnar eiga einmitt samanstað. Hápunktur glæpastundarinnar er að sjálfsögðu hin árlegu verðlaun Glæpafélags Vestfjarða, Tindabikkjan, verða afhent fyrir bestu glæpasögu síðasta árs. Það er óhætt að segja að síðasta glæpaár hafi verið glæpsamlega gott. Svo gott að miklar og átakanlegar umræðurnar, sem enduðu þó ekki á glæp þó tæpt hafi staðið, um hver væri besta íslenska glæpasaga ársins voru í raun alveg glæpsamlega langar. En nú hafa loks tekist sættir meðal félaga í Glæpafélagi Vestfjarða og komið er að því að tilkynna hver var besta íslenska glæpasagan árið 2013.

Handhafi bestu glæpasögunnar fær að launum hina eftirsóttu Tindabikkju auk þess sem boðið verður upp á upplestur úr verðlaunasögunni, glæpsamlega góðar veitingar og sitthvað fleira glæpsamlegt.

Allir velkomnir!

Þetta er fjórða árið í röð sem Glæpafélag Vestfjarða afhendir Tindabikkjuna fyrir bestu íslensku glæpasöguna á almanaksárinu. Yrsa Sigurðardóttir fékk verðlaunin fyrstu tvö árin og árið 2012 fékk Stefán Máni verðlaunin fyrir bók sína Húsið.

INNskráning

Nýskráning