Af menningarástandi
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Rafbók | 2025 | - | 2.990 kr. |
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Rafbók | 2025 | - | 2.990 kr. |
Um bókina
Af menningarástandi geymir safn greina og pistla sem Halldór Laxness skrifaði í íslensk blöð og tímarit á árunum 1922–1930 en efnið komst ekki á bók fyrr en mörgum áratugum síðar þegar Ólafur Ragnarsson, útgefandi Halldórs, safnaði því saman, skrifaði skýringartexta og gaf út undir þessu heiti árið 1986.
Hér talar skáldið unga tæpitungulaust við þjóð sína um fortíð hennar, samtíð og framtíð. Hann skefur ekki utan af skoðunum sínum og er bæði hvassyrtur og dómharður um menn og málefni. Bókin bregður upp skoplegri mynd af íslenskri menningu og samfélagi á þriðja áratugnum eins og skáldið sá það úr fjarska, því greinarnar skrifaði hann flestar ýmist staddur suður við Miðjarðarhaf eða vestur í Ameríku.
Í upphafi bókar segir hann aldraður frá endurfundum sínum við þessi gömlu skrif: „Ljóst var að skrifarinn hafði sumsstaðar tekið meira uppí sig en góðu hófi gegnir, líklega til þess að vekja þjóðina upp með andfælum og skaprauna yfirvöldum.“





















Umsagnir
Engar umsagnir komnar